|
|
Velkomin!
Þetta er vefurinn Skuggi sem hefur að markmiði að að veita kennurum,
nemendum og foreldrum upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur dyslexíu og
tungumálanámi. Upplýsingarnar sem byggja á fræðilegum grunni og miðast
að því að vera hagnýtar. Vefurinn á að vera gagnlegt tæki fyrir kennara,
nemendur og foreldra, sem býður upp á raunhæfar ráðleggingar um úrræði fyrir
dyslexíunemendur sem geta borið árangur.
| SKUGGINN |
Ég á lítinn skrýtinn skugga,
skömmin er svo líkur mér,
hleypur með mér úti og inni,
alla króka, sem ég fer. |
Það er skrýtið, ha, ha, ha, ha!
hvað hann getur stækkað skjótt,
ekkert svipað öðrum börnum,
enginn krakki vex svo fljótt. |
Allan daginn lappaléttur
leikur hann sér kringum mig.
Eins og ég hann er á kvöldin
uppgefinn og hvílir sig. |
Stundum eins og hugur hraður
hann í tröll sér getur breytt.
Stundum dregst hann saman, saman,
svo hann verður ekki neitt. |
| (Sig. Júl. Jóhannesson) |
Dyslexía fylgir sumum nemendum eins og skugginn sem getur verið mikill og
ógnvænlegur jafnvel breytt sér í tröll og verið þannig miklu meira áberandi
en sjálfur nemandinn sem burðast með hann. Fylgikvillar dyslexíunnar og
vanhæfni nemenda getur líka verið meira áberandi en hæfileikar þeirra.
Viljum við láta vanhæfni nemenda angra okkur frekar
en að gleðjast yfir hæfni þeirra? Þarna kemur einnig til viðhorf, ætlum við
að horfa meira á skuggann en þann sem varpar skugganum? Til þess að minnka
skuggann og hin neikvæðu áhrif sem fylgja honum þýðir ekki að ráðast að
skugganum sjálfum heldur þarf að snúa sér að þeim sem skugginn fylgir.
Skugginn er aðstæðubundinn og hann getur dregist saman, saman, svo hann
verður ekki neitt með því einu að færa sig úr stað. Með viðeigandi aðgerðum
er hægt að minnka skuggann og draga úr áhrifum dyslexíunnar. Þar kemur
sennilega fyrst og fremst til jákvætt viðhorf sem styrkir sjálfsmyndina og
hver sá möguleiki sem beinist að styrkleikunum fremur en veikleikum. Ef við
krefjum nemendur um að gera það sem þeir geta ekki eða mjög illa, vex
dyslexíu-skugginn með ógnarhraða, enginn krakki vex svo fljótt. Þótt
dyslexíuuskugginn fylgi húsbónda sínum alls staðar og minni sífellt á sig þá
hverfur hann líka á kvöldin þegar hann er uppgefinn og hvílir sig.
Heimildir:
Sig. Júl. Jóhannesson. (?). Skugginn. Vísnabókin. Reykjavík. Prentsmiðjan
Hólar. |