
HEILSUEFLANDI MH
MH er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli sem Lýðheilsustöð stendur að.
Nánast allir framhaldsskólar á landinu eru þátttakendur í verkefninu.
Markmið verkefnisins er heilsuefling nemenda og starfsfólks skólans á fjórum sviðum. Þau eru næring, hreyfing, geðrækt og lífsstíll.
Verkefnið er til fjögurra ára og einn vetur fer í að vinna á hverju sviði.
Þennan vetur, 2011-2012, verður næring tekin fyrir og reynt að bæta allt tengt henni innan skólans.
Innan skólans er starfandi stýrihópur og hlutverk hans er að halda utan um verkefnið.
Í stýrihópnum eru fulltrúar nemenda, starfsfólks og stjórnenda.
Lýðheilsustöð heldur utan um verkefnið, leiðbeinir og styður við stýrihópinn.



