heim

Tímaspeki úr heimspekitíma

Tíminn er eins og hraði/hreyfing. Jafvel þótt þú takir ekki eftir honum fyrr en þér finnst tíminn hafa liðið of hratt.

 

Tíminn er eins og hakkið og hakkið er allt í steik (vitnað í Andrés Önd)

 

Tíminn er eins og vatn úr krana. Maður sér ekki fyrir endann á því.

 

Tíminn er tilviljun

 

“Tíminn er hringur/hringrás” Pepe da Silva

 

Tíminn er eins og ofvaxin fingurnögl, fer í hringi en heldur samt áfram

 

Tíminn er eins og hringur, það endurtekur sig allt, bara á mismunandi hátt.

 

Tíminn er eins og rennandi vatn (á) eða tíminn er óstöðvandi eins og vindurinn

 

Tíminn er eins og stórfljót, líður áfram endalaust

 

Tíminn er eins og vindurinn, við fáum engu um það ráðið

 

Tíminn er eins og blindur maður sem gengur um göturnar og þreifar út í það ókomna!!!

 

Tíminn er óskiljanlegur

 

Tíminn breytir öllu

 

Tíminn er eins og veðrið, við fáum engu ráðið um hann

 

Tíminn er eins og sælgæti, ef það er gott endist það ekki nógu lengi, en ef það er vont getur óbragðið setið lengi eftir í munninum

 

Tíminn er eins og  . . .

 

Tíminn er eins og fuglinn sem flýgur

 

Tíminn er lífið

 

Tíminn er sveigjanlegur

 

Hvað er tími?

 

Tíminn er eins og þrískiptur spegill

 

Tíminn er hverfull

 

Tíminn er eins og  . . . biluð klukka! (breytist aldrei, er alltaf)

 

 

 

Tíminn er eins og rokið, kalt, miskunnarlaust, reitt og óvinsamlegt

 

Tíminn er eins og? HVAÐ er eins og tíminn? er eitthvað einsog tíminn

 

Tíminn er eins og vindurinn

 

Tíminn er eins og vindur, logn, gola, hvasst, hvirfilbylur

 

Tíminn er eins og sólin

 

Tíminn er eins og ást og ástin gefur lífgleði og deyr með minni, tíminn er einn dagur og eitt þúsund nætur

 

Tíminn er sjálfstæður (tíminn er eins og sjálfstæð persóna) ekkert sem við gerum hefur áhrif á hann

 

Tíminn er eins og vindurinn, stundum fer hann hratt um og stundum hægt ag aldrei getum við fundið hann aftur

 

Tíminn er eins og alheimurinn, óendanlegur

 

Tíminn er eins og hringur, hefur hvorki byrjun né endi

 

Tíminn er eins og skólinn. Því lengra sem á líður því meira lærir maður

 

Tíminn er skrítinn og margræður eins og alheimurinn. Þú getur ekki reynt að greina alheiminn og þú getur ekki reynt að rýna í tímann sem slíkan. Tíminn verður þér ofviða og of stór í umfangi á endanum

 

Tíminn er eins og skólinn

skýring. Hann líður en ekki nógu hratt

Tíminn er eins og þúr

skýring. Maður gleymir honum

 

Tíminn er einsog hraðlest

æskan - að taka af stað

fullorðin - búin að ná hraða

stoppistöðvar eru áföllin

“vonandi stoppar hún ekki lengi hér”

Áfangastaður = lífsins sigrar

úrelding og endurnýjun

 

Tíminn er sláttur hugans í viðjum vana

 

Tíminn er eins og skugginn, hann fylgir þér hvert sem þú ferð

efst á síðu