heim

Heimspekipróf

12. maí 2003 kl. 13 00 – 14 30 í dagskóla

5. maí kl. 18 00 –19 30 í öldungadeild

 

Námsmat:

Hugleiðingar 30%

Tvö krossapróf 20%

Fyrirlestur 10% (ekki öldungadeild)

Lokapróf, 40% (50% í öldungadeild)

 

P- nemendur athugið að biðja um krossapróf í lokaprófinu

 

 

Lesefni til prófs er:

Heimspeki eftir Martin Levander, MM 1997. Öll bókin að undanskildum kafla 6 og kafla 9

Eftirtalin ljósrit:

Úr Málsvörn Sókratesar eftir Platon

Úr Krítoni eftir Platon

“Hellislíkingin” úr Ríkinu eftir Platon

Úr Ríkinu, kaflinn um Þrasýmakkos

Úr Siðfræði Nikómakkosar eftir Aristóteles

Úr Tilverustefnan er mannhyggja eftir Sartre

Fyrsta hugleiðing um frumspeki eftir Descartes

 

 

Námstækni

Þegar þú undirbýrð þig fyrir próf notarðu ýmist kennslubókina, glósur, verkefnablöð og þína eigin frjóu hugsun. Ekki er ætlast til að þú lesir allt í gegn, heldur fremur að þú lesir í kringum það sem þú þarfnast og kemur fram á listanum hér fyrir neðan. Undirbúðu þig með því að skrifa niður og búa til svör. Ekki treysta á innblástur á prófdegi. Í alvöru. Æskilegt er að nokkrir nemendur undirbúi sig saman til að njóta góðs af vinnu og visku hvers annars. Stefndu samt alltaf að sjálfstæði í hugsun og framsetningu. Hvíldu þig vel, borðaðu vel – njóttu heimspekinnar og prófadaganna.