Námsmarkmið í heimspeki á vorönn 2003
1. Hvað er heimspeki. Reyndu að skrifa þína eigin skilgreiningu
2. Hverjar eru helstu greinar heimspekinnar og hvaða spurningar hennar heilla þig helst?
31. Hvernig lýsti Berkeley veruleikanum og hvað felst í þessum orðum hans: Esse est percipi?
32. Hvað telur Locke mæla gegn því að til séu meðfæddar hugmyndir og hvernig hefur þeim röksemdum verið svarað? Hvað á Locke við með tabula rasa?
33. Hvaða vandamál sem Hume sýndi fram á ýtti við Kant? Hver var launs Kants og hvernig flokkaði hann setninguna Allt á sér orsök?
34. Gerðu grein fyrir hugmynd Aristótelesar um fjórar ástæður hlutanna og beittu þeim á marmarastyttu.
35. Gerðu grein fyrir hugmyndum Þrasýmakkosar um réttlæti og hvernig Platon svarar þeim
36. Þekkja fjórar leiðir til skoðunarmyndunar skv. Charles Sanders Peirce
37. Geta skýrt hvað afleiðsla er, þekkja kosti og galla
38. Geta skýrt hvað aðleiðsla er, þekkja kosti og galla
39. Þekkja sálarkenningu Platons og hvernig hún tengist stéttum í fyrirmyndarríkinu og kenningunni um höfuðdygðirnar fjórar (glósur)
40. Umsagnir Aristótelesar
41. Kenning Aristótelsar um meðallag tveggja öfga
42. Munur á skyldusiðfræði og afleiðingasiðfræði
43. Nytjastefna John Stuart Mill og gagnrýni á hana
44. Siðfræði Immanúel Kant og gagnrýni á hana. Skilyrðislausa skylduboðið. Hvað felst í þeirri hugsun Kant að maðurinn sé markmið – ekki tæki?
47. Hver er hinn tilvistarlegi kvíði og hvernig birtist hann? Hvaða heimspekingar fjölluðu um hann? Getið þið nefnt dæmi úr eigin lífi?
48. Hvernig tengjast hugmyndir Nietzsche um ofurmennið gagnrýni hans á trúarbrögð og siðferði?
49. Gerið grein fyrir lífsviðhorfum Sören Kierkegaard
51. Gerðu grein fyrir rökfræðilegri raunhyggju. Hvað er átt við með staðfestingarkröfunni? Hvaða kröfur þarf góð vísindaleg tilgáta að uppfylla samkvæmt rökfræðilegri raunhyggju?
52. Fjallið um hvað Karl Popper taldi góðan mælikvarða á vísindakenningar
53. Hvað á Thomas Kuhn við með hugtökunum viðtak og vísindabylting?
54. Hvað átti John Rawls við með ímynduðum sáttmála?