Fjórar vinnulotur
Fyrsta lota – BÓK
Paraverkefni: Kynning á heimspekibók.
Nemendur skila af sér með handblöðungi þar sem fram eiga að koma atriði um höfund bókarinnar, stutt yfirlit um efni hennar, minnisstæðar tilvitnanir, gildisdómur um bókina, heimildaskrá um skylt efni.
Hver nemandi gluggar í þremur öðrum bókum, sem önnur pör eru að kynna sér, og undirbýr spurningu úr hverri þeirra sem kynnirinn þarf að geta svarað.
Jafningjamat 10 %
Kennaraeinkunn 10 %
Önnur lota í sex hrinum – GÁTA
Bekkurinn, hópur, einstaklingur
Fyrsta hrina
Lagðar verða fyrir sex af gátum heimspekinnar.
Nemendur halda vefráðstefnu, með fjórum til sex málstofum. Safna hugmyndum í hverja málstofu.
Önnur hrina
Hópurinn skiptir sér niður á málstofur. Hópurinn finnur efni á vefnum og velur lesefni minnst eina grein á nemanda. Samvinnunám
Þriðja hrina
Hver einstaklingur skrifar sjálfstæða hugleiðingu um sína gátu og miðar að einhverju leyti við efnisöflunina
Fjórða hrina
Hver nemandi les tvær aðrar hugleiðingar og gerir við þær skriflegar athugasemdir. Jafnframt gefur hann hugleiðingunum einkunn.
Fimmta hrina
Hver einstaklingur svarar þeirri gagnrýni sem fram kom á hann
Sjötta hrina
Hver hópur skrifar stutta skýrslu með niðurstöðum
Gátur: Upphaf og eðli heimsins? Tilvera guðs? Er ég sama manneskjan og í gær? Gefa skynfærin okkur rétta mynd af veruleikanum? Er það sama gott fyrir alla menn? Hvað er fegurð? Skiptir sannleikurinn máli?.
Jafningjamat fyrir hugleiðingu10 %.
Kennaraeinkunn fyrir hugleiðingu 10 %
Kennareinkunn fyrir hópvinnu 10 %
Þriðja lota – HEIMSPEKINGUR
Þristaverkefni –heimasíða
Þrír og þrír nemendur saman velja sér heimspeking til umfjöllunar.
Gera heimasíðu um heimspekinginn og búa til ímyndað viðtal.
Jafningjamat 10%
Kennaraeinkunn 10%
Fjórða lota - heimspekileg greining á samtíðarvanda
Hópverkefni
Hópar um ákveðin samtíðarvandamál finna lesefni og efni á vef, minnst eina grein á nemanda. Síðan les hópurinn sig til með samvinnunámi. Hópurinn afmarkar vandamál og reynir að greina það. Skilar af sér með spjaldi og fyrirlestri.
Samtíðarvandi: Umhverfismál, virkjunarmál, jafnrétti kynjanna, mannréttindi, líftækni, réttindamál samkynhneigðra, sjúkdómavæðing, kynþáttafordómar, réttlæting stríðs
Jafningjamat 10%
Kennaraeinkunn 10 %
Að auki verður lagt fyrir skyldulesefni sem prófað verður úr með gagnvirkum prófum
Gagnvirkt námsmat og almennt mat á frammistöðu 10%