Hvers vegna koma mannréttindi mér við?
 

Inngangur Verkefnið Spurningar Krækjur heim


Inngangur

Heimsyfirlýsing um mannréttindi var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðannna 1948. En hvað eru mannréttindi og hvað er meira um þau að segja, hvernig er hægt að vernda þau og hvenær eru þau helst brotin? Í þessu verkefni eigið þið að pæla í mannréttindum.
 

Verkefnið

Veljið eitt af ákvæðum mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna og búið til kynningu. Í kynningunni á að koma fram hvers vegna það er mikilvægt, hvernig það hefur verið brotið og hverjir vilja vernda það.

Reynið að varpa ljósi á tilfinningar.

Getið þið fundið brandara eða myndefni sem tengist efninu?

Hvaða leiðir eru til að koma í veg fyrir mannréttindabrot af þessu tagi?

Í kynningunni megið þið útbúa plakat eða dreifiblað, myndverk eða stuttmynd, heimasíðu, leikrit eða annað sem ykkur hugkvæmist.

En áður en þið byrjið á verkefninu eigið þið að leita svara við spurningunum hér að neðan. Þegar því er lokið takið þið saman skýrslu og skilið. Ekki er nauðsynlegt að fram komi allt það sem þið rædduð, aðeins það helsta.

 

Inngangur Verkefnið Spurningar Krækjur


Spurningar

  1. Hvaða mannréttindi þekkið þið nú þegar?

  2. Skoðið mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna

  3. Hvað eru mannréttindi og hvert er markmið þeirra? Notið eigin orðalag og látið einhver af eftirfarandi hugtökum koma fram í skilgreiningunni: Algild, óháð, jöfnuður, virðing, göfgi, gildi, markmið, óafsalanleg, mannhelgi, ábyrgð, réttlæti, frelsi, umburðarlyndi, sannleikur, öryggi, friður, sanngirni, samstaða, niðurlæging.

  4. Mannréttindum er stundum skipt í þrennt í náttúruleg réttindi, borgarleg eða stjórnmálaleg réttindi og félagsleg eða menningarleg réttindi. Finnið dæmi um ákvæði sem geta fallið undir hvern flokk.

  5. Hvað eru samtökin Amnesty international og hvernig starfa þau

  6. Finnið dæmi um mannréttindabrot (violation of human rights).
    Notið krækjurnar að neðan til að afla frekari upplýsinga.
    Hvaða ákvæði mannréttindayfirlýsingarinnar voru hér brotin?

  7. Hverju hafið hafið þið komsist að athyglisverðu um mannréttindi?

  8. Hvaða réttindi kom ykkur á óvart að finna í yfirlýsingunni, eitthvað sem þið vissuð ekki þegar þið svöruðuð fyrstu spurningunni?

  9. Hvaða réttindi er mikilvægt að verja? Í MH? Á Íslandi? Í heiminum?
     

Takið nú saman skýrslu úr svörunum og skilið áður en þið snúið ykkur að verkefninu sem var kynnt að ofan.

Inngangur Verkefnið Spurningar Krækjur


Krækjur

http://www.visindavefur.hi.is
þar er meðal annars að finna spurningarnar: Hvað eru mannréttindi? og Hvað felst í trúfrelsi? og Fengju apar mannréttindi ef hægt væri að kenna þeim að tala? og Ef málfrelsi ríkir og allir mega tjá skoðanir sínar, má ég þá predika hið gagnstæða?
http://www.humanrights.is/
á heimasíðu mannréttindaskrifstofunnar er að finna umræðu um mannréttindi en þar er einnig vísað á fjölda af krækum sem snerta mannréttindaumræðu út í hinum stóra heimi
http://www.amnesty.is/
heimasíða Íslandsdeildar Amnesty International þar er að finna mannréttindasáttmála Sameinuðu jóðanna
http://www.redcross.is/
heimasíða Rauðakross Íslands
http://www.un.dk/icelandic/IS_Menneskerettighedserkl/is_men_frame.htm
þar er að finna mannréttindasáttmála Sameinuðu jóðanna
http://www.unifem.is/
http://www.ahus.is/

http://www.sidmennt.is
Umræða um trúfrelsi
http://www.amnesty.org/
http://www.un.org/
 

Alfræðibók um heimspeki
http://www.utm.edu/research/iep/

Inngangur Verkefnið Spurningar Krækjur