heim

 

Heimspekispurningar

 

Hvað er uppruni?

Hver er tilgangur lífsins?

Eru trúarbrögð nauðsyn?

Af hverju er ég á Íslandi?

Af hverju erum við til?

Af hverju er himinninn blár?

Er Guð til?

Hvernig varð heimurinn til?

Hvers vegna varð heimurinn til?

Er tímahugtakið notað til þess að þjóna oss eða stjórnumst vér af því?

Hvað er sannleikur?

Hver er æðsti tilgangur vísinda?

Hvað er hrifning með sting í maga?

Er líf eftir dauðann?

Er trú af hinu góða?

Erum við það lítil í alheiminum

að við skiptum ekki máli?

Hvað er hugsun?

Eru guð og djöfullin raunverulegir?

Er vatn í glasi eða er glasið einungis um vatnið?

Hvað er lífið?

Hvert er lögmál hringsins?

Hver er ég?

Hvað er hamingja?

Er heimurinn/tíminn endanlegur?

Hvað snýr upp og hvað snýr niður?

Hvaða munur er á því sem sýnist vera og því sem er í raun?

Hvað er svarið við þessari spurningu?

“Er þetta spurning?”

Segir tré ‘dunk´ þegar það fellur á jörðina?

Breytir það einhverju þótt enginn standi hjá?

Ef enginn sér eða skynjar hlutinna,

eru hlutirnir þá raunverulega til?

Hvernig getur heimurinn verið óendanlegur?

Hvað er fegurð?

Erum við í raun þau einu í alheiminum sem lifa?

Hvað er ást?

Hver er forseti Íslands?

Hvað telst gott og hvað slæmt?

Hvar endar heimurinn?

Hvað er óendanleiki?

Hvað er ílát?

Af hverju heitir banani banani en ekki epli?

Sjá allar manneskjur sömu litina?

Er það sem ég skynja raunverulegt?

Er ástin aðeins orð?

 

 

 

 

 

Verkefni:

Skoðið spurningarnar að ofan. Flokkið þær undir helstu greinu heimspekinnar. Kannski þurfið þið að búa til nýjan flokk, og sumar spurningarnar geta fallið undir fleiri en eina grein.

 

 

Verkefni

 

Veljið eina af spurningunum að ofan og rökræðið hana. Reynið að skoða hana í sem víðustu ljósi, notið dæmi til að varpa ljósi á vandann. Verkefnið á að vera ca. tvær vélritaðar síður.

 

 

 

 

Heimspekispurningar nemenda í Hei 103

 

Er Guð til?

Er þak yfir himninum eða er hann endalaus?

Hvað er tími?

Why is knowledge that addicting?

Where is Frank when you need him?

Hver er Guð?

Af hverju er himinninn blár?

Hvað er ást?

Hver er tilgangur lífsins?

Af hverju er maðurinn "æðri vera"?

Hver og hvað er ég?

Er hægt að sigra tímann?

Eru hlutir ekki lengur heimspekilegir þegar búið er að sanna þá?

Hvernig er hægt að skera úr um hvort maður/kona er góð eða vond?

Af hverju erum við hér?

Hvað tekur við eftir þetta líf?

Hvernig skapar maður hamingju sína?

Hvernig getur fólk verið misjafnt?

Erum við það sem við höldum að við séum?

Af hverju er vatn blautt?

Upphaf alheimsins?

Er eitthvað alveg öruggt og hafið yfir allan vafa?

 

 

Væntingar til námskeiðs

Að fá skilning og samhengi á hlutum sem hafa verið sundurlausir og tilviljunarkenndir hingað til

Að spurningunum Hvað er heimspeki? Hvað er heimspekileg spurning og svar? verði svarað.

Auka sjóndeildarhringinn og heyra skoðanir annarra

Býst við að læra að hugsa skipulegar um viðfangsefni heimspekinnar og ræða þau

Það er betra að spyrja spurninga og vera heimsku í nokkrar sek. en að spyrja ekki og vera heimskur alla ævi

 

 

Er þetta spurning?

Er einhver til?

Hvað er blátt?

Er eitthvað eilíft?

Fullkominn maður/ríki?

Er hamingja forsenda lífs?

Hefur maðurinn eðli?

Alvald?

Er lífið blekking?

Erum við prógrammeruð eða prógrammerum við okkur sjálf?

Er hægt að réttlæta vald?

Hvert er eðli valds? Að viðhalda sjálfu sér?

Er líf fyrir handan?

Er líf út í geimnum?

Hvers vegna þroskuðust mennirnir í aðra átt en flest dýr?

Af hverju er himinninn blár en grasið grænt?

Hvaða skilgreiningar á lífinu eru réttar?

Hver er munurinn á réttu og röngu?

Til hvers er ég til?

Hvað er guð?

Er Guð til?

Hvort kom á undan, hænan eða eggið?

Hvað er spurning?

Hvers vegna er ég ég?

Til hvers líf?

Getur verið til almáttugur guð? Gæti hann skapað svo stóran stein að hann gæti ekki loftað honum?

Af hverju eru feður alltaf menn?

Hvers vegna hafa töflur alltaf svartan eða grænan lit?

Hvað er þor?

Er þak yfir himninum eða er hann endalaus?

Hvað er ást?

Hver er tilgangur lífsins?

Af hverju er maðurinn "æðri vera"?

Eru hlutir ekki lengur heimspekilegir þegar búið er að sanna þá

Er eitthvað alveg öruggt og hafið yfir allan vafa?

Ef menn komu af öpum af hverju eru þá ekki ennþá aðar að verða að mönnum?

Af hverju er eitthvað en ekki ekkert?

Er ég hér?

Er handklæðið hreint?

Hvað er þroski?

Hvað hefur gírafinn mörg hjörtu?

Hvað er að bera ábyrgð á sjálfum sér

Af hverju tortímum við öllu í kringum okkur?

Af hverju eru sumir morgunhressir?

Er hægt að vera illgjarn að eðlisfari?

 

 

 efst á síðu