Hei 103 - Heimspeki
Eru aðrir til? Hvað gerir mig að mér? Er þekking möguleg? Er Guð til? Hver er tilgangur lífsins?
Innsýn verður veitt í þessi og fleiri af helstu vandamálum heimspeki og greinar hennar verða kynntar. Lesnir verða frægir kaflar eftir helstu heimspekinga og gefið gróft yfirlit um sögu vestrænnar heimspeki.
Markmið áfangans er að opna heimspeki fyrir nemendum, þjálfa þá í rökræðum og hjálpa þeim við lestur og skilning á heimspekilegum texta.
Námsmat: Tvö verkefni og skriflegt próf í annarlok.
Lesefni: Heimspeki eftir Martin Levander, MM 1997
HEI 203 - Meiri heimspeki
Markmið áfangans er að stunda heimspeki með samræðum, lestri og skrifum og fá aukna innsýn í heim heimspekinnar. Stefnt er að sjálfstæðri, frumlegri og agaðri hugsun.
Námsmat byggir á fjórum verkefnum:
Rannsókn á vandamáli sem er í umræðunni, t.d. siðfræði lífs og dauða, mannréttindum, jafnrétti kynjanna, fátækt í heiminum, umhverfismálum
Kynning á heimspekibók
Kynning á merkum heimspekingi
Heimspekileg hugleiðing
Verkefnin eru ýmist einstaklingsverkefni eða hópverkefni.